Hvernig hlusta ég á RÁS 3 ?

Ertu búin/n að leita á öllum skalanum á FM útvarpinu í bílnum þínum og finnur enga góða tónlist?  Jújú, það er vegna þess að RÁS 3 er net-útvarpsstöð og sendir ekki út á FM tíðni.  Ástæðan er fyrst og fremst mikill kostnaður og þessvegna tekur RÁS 3 sín fyrstu skref sem net-útvarp eingöngu.

Ef þú hefur séð á forsíðunni merki með heyrnartólum þar sem stendur “Hlustaðu á Rás 3″, smellt á það og ekkert gerist, þá eru hér nokkrar ábendingar um hvernig má kippa þessu i liðinn.

Ef þú smellir á merkið opnast annaðhvort forrit sjálfkrafa sem spilar stöðina eða netvafrinn þinn hefur niðurhalið skránni sem á að spilast.  Þessi skrá heitir “listen.pls” og er sennilega i “Downloads” möppunni í tölvunni þinni.  Prófaðu að tvísmella á skránna, ef ekkert gerist eða tölvan spyr hvaða forriti þú vilt opna skránna í þá er hægt að gera eftirfarandi.

Velja forrit til að spila stöðina í.  Meðal annars er hægt að nota iTunes, Winamp, QuickTime eða VLC.

Ef tölvan spyr ekki hvaða forrit þú vilt opna skránna í, geturðu opnað forritið sjálft og farið í “File” og fundið möguleika sem heitir “Open URL”, “Streaming” eða eitthvað álíka. Þar seturðu inn eftirfarandi upplýsingar:

http://utvarp.ras3.is:8000/listen.pls

Þessi slóð er beinn hlekkur á útsendingarstreymið.

Þú getur einnig hlustað á stöðina í 3G símtækjum.  Oftast er nóg að opna netvafra, fara inn á ras3.is og velja heyrnartólin til að hefja streymi en stundum þarf að fara krókaleiðir að þessu.

(nánari upplýsingar koma inn síðar, eða netspilari sem verður innbyggður a forsíðuna)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s