RÁS 3 er framlag TFA ehf til menningarstarfs á Íslandi. Stöðin mun byrja sem netvarp og mun tónlistin sem þar hljómar endurspegla þá flóru sem ætti að vera í boði fyrir viðskiptavini RÚV ohf á aldrinum 16-30 ára.
Það er mat TFA ehf að nefskattur RÚV eigi að duga til að færa öllum sínum viðskiptavinum sömu þjónustu. Þegar kemur að hljóðvarpi er RÚV ohf að sniðganga sína yngstu viðskiptavini og ætti því réttilega að skerða nefskatt til þess hóps eða mæta þörfum hans með útvarpi, með RÁS 3.
TFA ehf mun reka og sjá um RÁS 3 þar til RÚV leiðréttir þessa þjónustu og þann sama dag mun TFA leggja verkefnið niður.
Til að hlusta á stöðina skaltu smella á þennan hlekk hér:
utvarp.ras3.is:8000/listen.pls
(ef ekkert forrit opnast, niðurhalið VLC spilaranum hér)
Einnig er hægt að hlusta á Rás 3 í iPhone símum (og öðrum 3G símum með Droid eða sambærilegu stjórnkerfi), Winamp, ITunes, VLC og öðrum forritum.
Til að lesa nánar um tildrög og aðdraganda Rásar 3 skal bent á tvær greinar:
Greinin “Afhverju ekki Rás3?” frá 21.maí 2009: http://omaromar.bloggar.is/blogg/436995/Afhverju_ekki_Ras3_
Greinin “RÚV – útvarp útvaldra landsmanna” frá 1.desember 2009: http://omaromar.bloggar.is/blogg/449710/RUV_-_Utvarp_utvaldra_landsmanna
Fyrir hönd TFA ehf.
Ómar Ómar
omar@tfa.is
s: 893 5852




Sæll, ég er búinn að vera að hlusta á þessa stöð og er að fíla hana í botn, en verður hún ekki í útvarpinu, bara á netinu?
Snilld Tómas, þakkir fyrir!
Rás 3 verður gerð meira áberandi og aðgengilegri en útsendingar á FM tíðni eru ekki áætlaðar eins og stendur. Ef mjög vel gengur og eftirspurnin verður mjög mikil er aldrei að vita nema RÚV verði boðið að senda stöðina út á FM